fimmtudagur, ágúst 14, 2008

Svipmynd af fimmtudagskvöldi

Fúli Ítalinn á horninu var ekki hrifinn þegar ég skaust inn klukkan tíu mínútur í tíu og sagðist ætla að fá tvær litlar pizzur. Hann horfði grunsemdaraugum á klukkuna og bölvaði mér í hljóði meðan ég settist niður og blaðaði í Sterling Magazine.

Afgreiðslustrákurinn í 7-11 var öllu glaðbeittari og sérstaklega hýrnaði yfir honum þegar ég sagðist ætla að borga með korti, enda bannað að vera með nema lágmarksskiptimynd á kvöldin og þungbúni rapparinn á undan mér kláraði hana sjálfsagt alla með því að nota 200 kall til að verlsa hálfan sígarettupakka.

Kúnnaleit hórunnar í kjallaranum hinumegin við götuna hefur væntanlega borið árangur, þegar ég labbaði til baka var búið að loka bílskúrsdyrunum sem annars standa vanalega í hálfa gátt. Það var þó að minnsta kosti ekki heill sportbíll af vinum að bíða fyrir utan og blasta hip hop í þetta sinn.

Eftir að hafa velt því fyrir mér í milljónasta sinn hvort að konurnar tvær sem ég mætti við hornið á blokkinni minni væru að tala sín á milli á arabísku, tyrknesku, persnesku eða einhverju allt öðru máli blasti við mér plömmerinn á einum nágrannanum sem sat og grúfði sig yfir einhverja pappíra innan við upplýstan glugga og minnti mig á af hverju ég ætla aldrei að búa á stuen.

Meðan ég bölvaði ofurbjörtu ljósunum í lyftunni enn eina ferðina velti ég því fyrir mér hvort að ég ætti eftir að sakna hverfisins þegar við flytjum héðan eftir rúmlega mánuð...

þriðjudagur, ágúst 05, 2008

Hér sé blogg

Það er langt síðan ég skemmti mér jafnvel yfir bloggfærslu eins og þessari hérna.

En það sýnir líklega bara hvað ég er klámfengin og dónaleg í hugsun.

Allt getur maður fundið á wikipediu...