föstudagur, ágúst 26, 2005

Hver er hræddur við skrímsli sem er hóstandi og með stíflað nef?

Ég er lítið lasið skrímsli,
og mig langar ekkert út
hornin mín eru völt og veik
og mig vantar snýtuklút.
Ég er orðinn upplitaður,
ég er orðinn voða sljór
og ég held ég hringi í lækni
því að halinn er svo mjór!